Blómálfur bloggar
29.08.2006 21:02:19 / blomalfur

Jæja þá...

...langt síðan ég skrifaði síðast. Búið að vera brjálað að gera. Er sem sagt flutt til Íslands og búin að fá að vera á svefnsófanum hjá múttu þessar síðustu vikur. Kallinn minn er svo væntanlegur heim til Íslands á laugardaginn og ég hlakka voðalega mikið til þess. Þá fáum við líka loksins afhenta íbúðina sem við erum að fara að leigja og lífið fer að komast í fastar skorður.

Annars gengur bara alveg þokkalega vel í átakinu hjá mér. Er að halda mér frá öllu nammi og sukki og borða alltaf hollan og góðan mat þó hann sé stundum óvigtaður. Reyndar hefur það verið svolítið erfitt að venjast ýmsu sem er öðruvísi við matarinnkaup hér og í Danmörku. Sakna ddv jógúrtsins t.d. alveg svakalega.

Hef ekki ennþá komist í vigtun síðan ég kom heim til Íslands. Stefnana er þó tekin á að mæta í vigtun á morgun. Pínu stressuð en hlakka samt svolítið til.

Annars er ég bara ánægð með lífið og tilveruna. Fyrir 1 viku passaði ég loksins í "gulrótargallabuxurnar" mínar. Gallabuxur sem ég keypti fyrir 6 árum þegar ég var að byrja með kærastanum og hef verið að máta reglulega undanfarið... Hef varla farið úr þeim síðan :P

Læt vita hvernig gengur á morgun. Hlakka til að kíkja á ykkur hinar átaksskvísur.


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 15:34:06 / blomalfur

Óþarfa svartsýni

Það var óþarfa svartsýni í mér í seinustu færslu. Liggur að hluta til í því að ég hef ekki ennþá fest kaup á digital vigt og vigtin sem ég á afstillist auðveldlega og það er erfitt að lesa á hana. Sýndist ég sem sagt ekkert vera búin að léttast á vigtinni hérna heima en það var rangt.

1,6 kíló voru það sem kvöddu í þetta skiptið og ég alveg í skýjunum með það. Það hefur greinilega borgað sig að fá sér rækjukokteil og salat á meðan aðrir fengu sér pizzur og steikur :)

Annars var þetta síðasta vigtunin mín hér í Danmark. Nú taka við flutningar og ég ætla að reyna að standa mig vel á meðan á þeim stendur. Verð þó nokkra daga án búslóðar og eldhúsdóts, kemur í ljós hvernig það fer. Er þó búin að ákveða að taka kryddin mín með í ferðatöskunni því þeirra get ég ekki verið án lengi.


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.08.2006 07:17:56 / blomalfur

Jæja þá...

fyrri hluta vikunnar gekk mjög vel og ég borðaði algjörlega eftir ddv. Ég sá að vigtin var farin að hreyfast niður á við og var mjög ánægð. Svo komu til mín gestir en þá er mikið flakk á manni og borðað úti. Ég hef verið extra skynsöm í vali mínu þegar ég borða ekki heima. Hef þá t.d. fengið mér rækjukokteil og salat eða bara salat með kjúkling. En aarrgggg... ég sé að vigtin er farin aftur upp og hætt við að fara niður. Ég þoli það barasta ekki. Ég veit að ég hef ekki verið að fylgja prógramminu 100% en ég hef samt verið að velja rétt og ekkert nammi, kók, sykur, franskar eða önnur óhollusta. Þá er það ekki einu sinni þannig að ég standi í stað heldur bæti ég á mig því sem var farið fyrri hluta vikunnar. Aftur aaarrrggg!!!!!

Í dag erum við að fara á ströndina. Ég er að hugsa um að taka með mér nesti, það er verst að ég á nánast ekkert í ísskápnum. Svo er spurning hvernig grænmetið lítur út eftir nokkra tíma í sólinni.

Annars hlakka ég mikið til að komast aftur í rútínu. Flytja til Íslands, byrja í vinnunni og hafa fasta og planaða matmálstíma. Það verður gott og þá fara kílóin vonandi að fjúka aftur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 13:18:58 / blomalfur

Í gírnum

Ég er búin að vera í góðum gír undanfarna daga. Fylgt prógramminu í einu og öllu og það er sko góð tilfinning. Finnst vera komin tími til að ég missi yfir 1 kíló, búið að vera svo mikill hægagangur á mér undanfarið að ég er farin að þrá að sjá aðeins meiri hreyfingu á vigtinni.

Í kvöld ætla ég að hafa lax í kvöldmatinn, prufaði í fyrsta skipti að kaupa frosin laxastykki í staðinn fyrir fersk, vona að þau verði góð.

Annars á ég von á matargestum á morgun og ég er ekki alveg búin að gera upp við mig hvað ég elda. Þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ fólk í mat sem veit ekki að ég borða samkvæmt ddv og ég hef engan sérstakan áhuga á því að segja frá því. Var að spá í að grilla svínalundir og búa til gott salat og tzasiki með en svo er bara rigning og ég held að hún eigi að halda áfram á morgun. Er kannski að spá í að búa til kjúklingaréttinn með mangó chutneyinu, hann er rosa góður og það fattar það enginn að hann sé ddv special. En ef þið eruð með einhverjar hugmyndir handa mér þá eru þær vel þegnar. Nú svo mun ég líklega bjóða upp á vín með matnum, sé til hvort ég fái mér líka. Svo verður það bara ávaxtakokteill í eftirrétt.


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 10:17:18 / blomalfur

Lítill léttingur þessa vikuna

Jæja, þá er vigtunin búin. Það fóru 100 grömm þessa vikuna, ekkert stórkoslegt en eitthvað sem ég átti von á. Það er svona þegar maður stelst í ítalska pizzu og hvítvín og óvigtaðan mat á hverjum degi. Er þó nokkuð ánægð bara, þetta sýnir mér að ég mun geta haldið kjörþyngdinni þegar ég kemst í hana. Búin að vera skynsöm þó ég hafi ekki farið í einu og öllu eftir ddv prógramminu.

Svo fékk ég Moniku, vigtarráðgjafann minn, til þess að reikna út BMI hjá mér. Hún sagði mér að ég væri búin að bæta við mig vöðvamassa og að ég væri með sama vatnsmagn og þegar ég byrjaði. Þannig að þetta er bara pjúra fita sem er búin að kveðja. Hún var voða ánægð með þetta hjá mér og ég að sjálfsögðu líka.

Annars taka nú við nokkrir 100 % ddv dagar þangað til að næstu gestir koma.


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 10:16:55 / blomalfur

Úff...

Vigtunardagur á morgun og ég ekki búin að vera að standa mig nógu og vel. Ég og mamma búnar að vera á miklu flakki og því oft borðað úti, annað hvort í hádeginu eða á kvöldin. Reyndar ekkert búin að vera í neinni vitleysu, bara óvigtaður matur, aðallega salöt og svo veit maður náttúrulega ekkert hvað er notað í salatdressingarnar þegar maður borðar úti. Fyrsti 100 prósent ddv dagurinn minn í þessari viku var í dag. Ég vona að það verði einhver grömm farin í vigtun á morgun en ef ekki þá verð ég alveg sátt, svo lengi sem ég bæti ekki á mig.

Set tölurnar inn á morgun. Vona að þið séuð búnar að vera duglegri en ég.

Over and out, Blómálfur


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 10:16:34 / blomalfur

400 grömm ruku

Jæja, var að koma úr vigtun og það voru 400 grömm sem kvöddu í þetta skiptið. Ákvað reyndar að fara aðeins meira klædd heldur en venjulega þannig að það hefur líklega haft einhver áhrif. Var búin að gera það að venju að fara í þynnsta sumarpilsinu mínu og örþunnum hlýrabol í vigtun, engir fylgihlutir leyfiðir, ekki einu sinni úrið mitt. Svona gengur þetta ekki til lengdar, sérstaklega þar sem ég er að flytja til Íslands eftir 3 vikur. Í dag fór ég sem sagt í fóðruðu pilsi, aðeins þykkari hlýrabol, með úr, belti og eyrnalokka :-) Ágætt að taka þetta svona í litlum skömmtum. Aldrei að vita nema ég mæti í gallabuxum næst…

Í dag á ég annars á von á mömmu í heimsókn frá Íslandi og ætlar hún að vera hjá okkur í viku. Ég ætla að sjálfsögðu að halda áfram að vera DDV væn en það verður líklega eitthvað brugðið út af planinu, fengið sér salat á kaffihúsi, hvítvínsglas í sólinni og svona. En það verður allt í hófi og hollustan höfð að leiðarljósi.

Annars eru núna farin 11,1 kíló í allt. Á 900 grömm í næsta takmark og þegar því er náð er ég hálfnuð. Vúhú!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 10:16:10 / blomalfur

Takk

Langar að byrja á því að þakka ykkur fyrir að kíkja á átaksbloggið mitt og fyrir að bæta mér inn á linkalistann ykkar. Ég er búin að bæta ykkur inn hjá mér og mun kíkja á ykkur reglulega.

Annars var síðasti dagurinn minn í vinnunni í gær. Er að hætta á sambýlinu þar sem ég hef verið að vinna undanfarna mánuði. Það var frekar erfitt að kveðja alla yndislegu íbúana og eins allt starfsfólkið sem er búið að kenna mér svo margt. En svona er víst lífið og spennandi verkefni bíða handan við hornið.

Sá mér leik á borði og keypti sæta krukku og í hana setti ég íslenska lakkrísinn sem er búin að vera hérna inn í skáp og reyna að lokka mig til sín. Fór svo með krukkuna upp í vinnu í gær til þess að fólkið þar geti prufað þennan yndislega lakkrís… Nú svo tók ég líka með mér DDV ís og fersk jarðaber í vinnuna og við fengum okkur það í desert í kvöld, gaman að geta svona einu sinni verið með í dessertinum.

Annars eldaði Line sem var með mér á vakt þennan líka góða fisk. Rauðsprettuflök sem hún kreisti sítrónu yfir og klippti svo púrrulauk yfir og kryddaði með svörtum pipar, setti þau svo inn í ofn í kortér. Með þessu voru svo ofnkartöflur, ferskt salat og heit tómatsósa sem var alveg hrikalega góð. Hún notaði niðursoðna tómata, tómatpuré, grænmetiskraft, 1 lauk, 2 hvítlauksrif, salt og pipar og smá undanrennu og svo sósujafnara. Mæli eindregið með þessari sósu með fisk, ábyggilega líka góð með kjúkling. Mér finnst það líka alltaf jafn yndislegt þegar það er einhver annars sem eldar fyrir mig kvöldmat…

Nú svo svindlaði ég pínu í gærkvöldi. Við ákváðum að skála í hvítvíni þegar vaktin var búin og það var bara svo kósý að ég ákvað að fá mér eitt glas, engin stór skaði.

Hlakka annars til að fara í vigtun á mánudaginn. Er búin að fá mér fisk núna bæði föstudag og laugardag og það er mjög líklegt að það verði líka fiskur á borðum í kvöld þar sem það er það eins sem ég á í frystinum.

Gangi ykkur öllum vel.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 10:15:49 / blomalfur

Nammi namm...

Mér finnst það alltaf jafn ótrúlegt að ég skuli grennast á DDV fæðinu.

Var að borða alveg geggjaða pizzu í hádegismat. Tortilla pönnukaka með tacosósu, mögrum osti, skinku, sveppum, spínati og cherry tómötum. Svo fullt af hvítlauksolíu til að toppa þetta.

Hefur gengið rosa vel í þessari viku. Fylgt prógramminu alveg 100%, sé samt ekki að ég sé búin að léttast neitt í þessari viku. En það hlýtur að koma um helgina.

Er að fara að vinna í kvöld og þar verður lax í matinn þannig að það er stór plús.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 10:15:27 / blomalfur

Kílóin fjúka

Jæja, þá kom að því að ég opnaði mína eigin blogg átakssíðu. Hef verið að fylgjast með átakssíðum annarra DDV kvenna síðan ég byrjaði á DDV mataræðinu og satt að segja finnst mér ég vera farin að þekkja margar þeirra ansi vel á því að lesa skrif þeirra nokkrum sinnum í viku. Málið er bara að þær þekkja mig ekkert þar sem ég er ekki til í bloggheimum. En nú hefur orðið breyting á því og blómálfur er byrjaður að blogga.

Ég byrjaði sem sagt að borða skv. DDV þann 21. mars 2006. Ég er búin að missa 10,6 kíló og stefni á að missa að minnsta kosti 13,4 í viðbót. Nú svo tekur “the real challenge” við… að halda kjörþyngd!!!

Læt þetta duga í bili.

Þangað til næst,

Blómálfur


» 0 hafa sagt sína skoðun